Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the maris domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /var/www/vhosts/maris.is/httpdocs/wp-includes/functions.php on line 6121

Notice: Function _load_textdomain_just_in_time was called incorrectly. Translation loading for the acf domain was triggered too early. This is usually an indicator for some code in the plugin or theme running too early. Translations should be loaded at the init action or later. Please see Debugging in WordPress for more information. (This message was added in version 6.7.0.) in /var/www/vhosts/maris.is/httpdocs/wp-includes/functions.php on line 6121
Dælustýringar – Maris

Dælustýring stýrir vatnsdælum eða dælusamstæðum eftir óskgildum. Óskgildin geta til dæmis verið þrýstingur, hiti, flæði eða vatnshæð. Iðntölva sér um ræsingu og keyrslu dæla eftir óskum notanda. Maris hannar og smíðar dælustýringar eftir þörfum hvers og eins og tekur að sér uppsetningu og tengingar á dælustýringum og dælum. Maris sérhæfir sig í dælustýringum fyrir borholudælur og eldisker, ásamt annarri nauðsynlegri vöktun og stýringu í kringum fiskeldi svo sem súrefnisvöktun og súrefnisstýringu. Æskilegt er að vakta allar dælur með viðvörunarkerfi og á þeim vettvangi hefur Maris mikla reynslu þegar kemur að útfærslu og lausn slíkra kerfa.  Ef frávik eru í dælustýringu mun viðvörunarkerfi koma réttum skilaboðum, um bilun, til vaktmanns með símhringingu,  smáskilaboðum eða „push notification“ allt eftir þörfum.